Reykjavíkurmaraþon – Hlauparar á facebook

Úr Barnaspítalasjóði Hringsins eru árlega veittir styrkir til að bæta aðbúnað barna sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Það hefur verið metnaður Barnaspítalasjóðs frá stofnun hans 1942 að börn hafi aðgang að bestu lækningatækjum og aðbúnaði sem til er á hverjum tíma. Eitt af aðalverkefnum sjóðsins síðustu ár hefur verið að styrkja Vökudeildina svo aðbúnaður þar sé sá allra besti sem völ er á fyrir þau börn og foreldra sem þurfa að nýta þjónustu Vökudeildar.

Í ár stefnum við á að safna fyrir Vökudeildina.

Við hvetjum vini og velunnara Hringsins að heita á hlauparana okkar. – Margt smátt gerir eitt stórt!

Upplýsingar eru á hlaupastyrkur.is

Barnaspítalasjóður Hringsins á hlaupastyrkur.is

 

Hlauparar Hringsins eru með skemmtilegan hóp á Facebook. Endilega skráðu þig!  https://www.facebook.com/groups/472947570124360/

Aðrar fréttir