| Tónlist til styrktar Hringnum |
|
Hringnum hefur borist gjöf. Allar sölutekjur af laginu Jólanótt í endurgerð Lands og Sona renna til Hringsins. Það er til minningar um Viktor Kára Jónsson sem lést á vökudeild í júli sl. Þess má geta " að undanfarin tæp tvö ár, hafa fæðst fjögur börn inn í Lands og Sona fjölskylduna og það merkilega er að þessi fjögur börn komu öll við á vökudeild Barnaspítala Hringsins til lengri eða skemmri tíma" eins og segir í bréfi frá Njáli Þórðarsyni. Lagið má finna á Tónlist.is
|
Minningarkort er hægt að panta með því að hringja í síma 543-3022 og 543-3025 frá kl. 8-16 á virkum dögum.
Smellið hér til að skoða minningarkort og panta
Til styrktaraðila:
Kennitala Barnaspítalasjóðs Hringsins er 640169-4949 og reikningsnúmer er 0101-26-054506.