Söluvörur Hringsins
Minningarkort Hringsins

Minningarkort Hringsins

 
Armbönd með hvítri áletrun: "Hringurinn Barnaspítali"

Félagið hefur látið útbúa blá gúmmíarmbönd með hvítri áletrun: "Hringurinn Barnaspítali". Armbönd af þessu tagi er algeng meðal stuðningsmanna einhvers málstaðar eða félags. Þessi armbönd eru þannig hátískuvara og ætluð fyrir meðlimi félagsins og stuðningsmenn veikra barna (á öllum aldri). Þau kosta kr. 500 stykkið og fást í Veitingastofu Hringsins í anddyri Barnaspítalans við Hringbraut. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir og pantanir á tölvupóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 
Heiðursskjal Hringsins

Hringurinn gefur kost á því að brúðhjónum, afmælisbörnum og öðrum, sem halda upp á tyllidaga í lífi sínu, verði sent sérstakt heiðursgjafabréf með tilkynningu um að Hringurinn hafi af því tilefni veitt viðtöku peningaupphæð í Barnaspítalasjóðinn.

Senda mábeiðni um slíkt á tölvupóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og þarf þá að gefa upp nafn og heimilisfang viðtakanda, tilefnið, dagsetningu og upphæð gjafar (lágmark kr. 10.000), undirskrift á gjafabréfið og nafn og kennitölu greiðanda. Viðskiptabanki Hringsins, Landsbankinn, annast innheimtu í heimabanka eða með því að senda greiðsluseðil.

 
Hringurinn í Reykjavík

Bókin segir sögu félagsins frá stofnun þess árið 1904 og fram til ársins 2002. Fyrsti hlutinn fjallar um félagsstarfsemi kvennanna fram til 1906, en það ár breyttist félagið úr skemmtifélagi Reykvískra kvenna í styrktarfélag fátækra tæringarsjúklinga (berklaveikra). Annar hluti fjallar um byggingu og rekstur hressingarhælis og búrekstur félagsins í Kópavogi árin 1906 til 1942. Þriðji hlutinn fjallar um baráttu Hringsins fyrir því að komið yrði á fót sjúkrastofnun fyrir börn í Reykjavík og um áratuga stuðning félagsins við Barnaspítalann. Í fjórða og síðasta hlutanum eru skrár yfir stjórnir félagsins, heiðursfélaga og fleira.

Þetta er mikil og fjölbreytt saga, sem sögð er af mikilli nákvæmni. Ljósmyndir eru fjölmargar. Hún er saga íslenskra kvenna, saga Reykjavíkur, saga Kópavogs og saga líknarstarfs á Íslandi. Höfundur er Björg Einarsdóttir, en hún naut aðstoðar Valgerðar Kristjónsdóttur. Útgefandi er Hið íslenska bókmenntafélag árið 2002.

 

 
Derhúfur og golfboltar með Hringsmerkinu.

Þessar vörur fást í Veitingastofu Hringsins á fyrstu hæð í Barnaspítala Hringsins. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir og pantanir á tölvupóstfangið:  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Húfur í þremur litum, rauðar,
bláar og kremlitar: kr.1000.

Þrír boltar í pakka: kr. 1000.