Veitingastofa Hringsins

Hringurinn hefur starfrækt veitingastofu í anddyri Barnaspítalans frá árinu 2003. Þar eru seldar léttar veitingar, s.s. súpa, smurt brauð, mjólkurvara, kaffi og kökur. Veitingastofan er fyrst og fremst ætluð fyrir aðstandendur barnanna, en starfsfólk spítalans sækir einnig veitingastofuna mikið.  Opið er virka daga frá kl. 8 til kl. 14.

Daglegur rekstur er í höndum Jóhönnu S. Sigmundsdóttur - sími - 899-1136   - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Veitingar á fundum
Veitingastofan tekur að sér að sjá um veitingar í tengslum við fundi í Hringssal og jafnvel í öðrum sölum á vegum Landspítala. Boðið er upp á mismunandi samsetningar (pakka) veitinga: Kaffi, te, kakó, vatn, gosdrykki, smurt brauð, smábrauð (rúnnstykki), kleinur, múffur (muffins), vínarbrauð, tertur og ýmislegt fleira.  Þessi þjónusta er einnig veitt utan venjulegs vinnutíma og um helgar. Hafið samband við starfsmenn í síma: 543-3131

Sýningar- og söluskápur
Settur hefur verið upp í anddyri Barnaspítalans sýningarskápur með handavinnu Hringskvenna. Þar má sjá ýmsa gjafavöru, s.s. skírnargjafir og sængurgjafir, sem gestir og gangandi geta keypt og þannig styrkt Barnaspítalasjóð Hringsins. 

Stjórn veitingastofunnar skipa:
Laufey Gunnarsdóttir - sími     898-3298     - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ragna Eysteinsdóttir - sími     899-2720     - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Sigrún Hjaltalín - sími     820-0067     - Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Nú liggja fyrir teikningar að innréttingum vegna stækkunar veitingastofunnar og er fyrirhugað að nýi hlutinn verði tekinn í notkun í janúar-febrúar 2010.

Veitingastofuna vantar alltaf góðar félagskonur til að taka þátt í starfinu. Vinsamlega gefið ykkur fram á staðnum eða við Hrefnu í síma   698-4202  eða með því að senda tölvupóst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.