Forsíða Jólakaffið
Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Jólakaffi Hringsins er haldið á hverju ári, fyrsta sunnudag í desember að Broadway við Ármúla. Þar er á boðstólum glæsilegt kaffihlaðborð með brauði, kökum og tertum sem Hringskonur hafa sjálfar útbúið.

Glæsilegt happdrætti hefur mikið aðdráttarafl fyrir yngra fólkið, en vinningarnir eru allir gefnir af velunnurum Barnaspítalasjóðs Hringsins, fjölda fyrirtækja og einstaklinga. Ýmsir góðir skemmtikraftar koma einnig fram og hafa sumir gefið vinnu sína til þessa málstaðar áratugum saman. Læknar af Barnaspítalanum hafa undanfarin ár hjálpað til í fatamóttöku, við sölu á happdrættismiðunum og í eldhúsi eftir að jólakaffinu lýkur.

Ágóðinn af jólakaffinu rennur óskiptur í Barnaspítalasjóðinn, sem styrkir veik börn á Íslandi.

Árið 2010: Jólakaffið og happdrættið verður haldið á Broadway við Ármúla sunnudaginn 5. desember kl. 13:30.

 
Höfundarréttur © 2010 Hringurinn. Öll réttindi áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL leyfi.