| Fróðleiksmolar |
|
Söfnunarbaukar Söfnunarbaukar Barnaspítalasjóðs eru á mörgum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, svo sem í anddyri Barnaspítalans, í lyfjabúðum og á ýmsum skyndibita- og veitingastöðum. Þá hefur baukum verið komið fyrir á Selfossi, í Keflavík, í Leifsstöð og við Hvalfjarðargöngin. Velunnarar eru minntir á að taka eftir baukunum og láta helst eitthvað af hendi rakna í hvert sinn sem þeir sjá bauk. Margt smátt gerir eitt stórt. Baukurinn á myndinni er í Barnaspítalanum en útlit baukanna getur verið mismunandi.
Rauði kassinn Hinn svonefndi „Rauði kassi“ var gerður til að taka við framlögum til Barnaspítalasjóðs í tengslum við afmæli og aðra merkisviðburði hjá Hringskonum. Hugmyndin er sú að þær félagskonur, sem afþakka persónulegar gjafir, geti fengið kassann að láni og látið hann standa á áberandi stað í afmælisveislunni til að taka við fjárframlögum frá ættingjum og vinum í stað gjafa. Allir aðrir velunnarar Barnaspítalasjóðsins geta auðvitað fengið kassann að láni til sömu notkunar. Kassinn fæst með því að senda stjórn Hringsins beiðni í tölvupósti: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Frímerki Hringsins Á 100 ára afmæli Hringsins árið 2004 var gefið út frímerki til heiðurs starfsemi félagsins. Á frímerkinu er merki Hringsins, ártölin 1904-2004 og mynd af rúmliggjandi barni með bangsann sinn hjá sér. Verðgildið er 100 krónur (eins og árin sögðu til um). Þetta var mikil viðurkenning og heiður fyrir félagið.
Á hundraðasta starfsári sínu fékk Hringurinn tvær viðurkenningar: Maður ársins Fréttastofa Stöðvar 2 og Bylgjunnar kunngjörðu að "Maður ársins 2003" væri konan í Hringnum. Viðurkenningin var veitt fyrir ötult og óeigingjarnt starf í 100 ár í þágu sjúkra barna og fjölskyldna þeirra.
Framlag í þágu barna Barnaheill hafa veitt árlega viðurkenningu fyrir sérstakt framlag í þágu barna og réttinda þeirra í tilefni af samningi um réttindi barnsins, sem samþykktur var á alsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1989. Árið 2003 var það Hringurinn sem fékk þessa viðurkenningu.
|
Minningarkort er hægt að panta með því að hringja í síma 543-3022 og 543-3025 frá kl. 8-16 á virkum dögum.
Smellið hér til að skoða minningarkort og panta
Til styrktaraðila:
Kennitala Barnaspítalasjóðs Hringsins er 640169-4949 og reikningsnúmer er 0101-26-054506.