Jólafundur Hringsins verður haldinn 8.desember í Iðnó kl. 18.30 Í boði verður margréttaður jólamatseðill, sem borinn er á borðin Tilboð er á léttvíni og 30% afsl. á sterkum drykkjum Hittumst á barnum á 2. hæð upp úr kl. 18. Það er lyfta í húsinu á barnum Dagskrá Formaður býður félagskonur og gesti velkomna Séra Anna Sigríður Pálsdóttir Dómkirkjuprestur er heiðursgestur Tónlistaratriði Happdrætti Dinnertónlist Vinsamlegast skráið ykkur hjá Ágústínu Pálmarsd.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hringið í síma 822-6123 Góða skemmtunAðalfundur Hringsins
Aðalfundurinn verður haldinn í félagsheimilinu miðvikudaginn 6. maí kl. 18:30. Fyrst er sameiginlegt borðhald félagskvenna. Á dagskrá fundarins eru: skýrslur stjórnar og nefnda, lagabreytingar, kjör í stjórn og kosning í nefndir. |
|
Styrkir
Frá því í júní 2008 og fram í desember sama ár heimsóttu stjórnarmeðlimir Barna- og unglingageðdeild, Litningarannsóknadeild, Kvennadeild Landspítala og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra til að færa þeim styrki úr Barnaspítalasjóðnum. Í október 2008 var hins vegar farið í heimsókn í gamla Glitni til að veita viðtöku þeirri upphæð sem kom inn sem áheit við Reykjavíkurmaraþon í ágúst. |
|
Súrefnismettunarmælar fyrir nýbura
Hringurinn afhenti fæðingadeild Landspítala 23A og Hreiðrinu að gjöf tvo súrefnismettunarmæla þann 29. janúar 2009. Mælarnir gefa færi á að fylgjast náið með súrefnismettun í blóði nýbura, sem eykur mjög á öryggi varðandi mat á ástandi nýfæddra barna, sem geta þannig dvalist með mæðrum sínum á deildinni. |
 |
Styrkur til Barna- og unglingageðdeildar Fyrri hluta júní-mánaðar skoðuðu stjórnarkonur nýbyggingu BUGL, sem hýsir göngudeild starfseminnar. Móttökur voru góðar og var hópurinn leystur út með kostnaðaráætlun um ýmislegt sem eftir er að fjármagna. Stjórnin fundaði síðar um þetta og samþykkti að veita styrk til að kaupa húsbúnað í biðstofu og innréttingar í fundarherbergi fyrir börn og aðstandendur. |
|
Styrkur til Barnaspítalasjóðs
Til Íslands komu í september áhangendur skoska landsliðsins í fótbolta til að vera viðstaddir landsleik milli Skota og Íslendinga. Þeir hafa myndað góðgerðarsamtök sem nefnast The Tartan Army Sunshine Appeal og hafa það fyrir venju að veita styrki í þeim löndum sem landsleikur fer fram í. Í þetta sinn varð Barnaspítalasjóður fyrir valinu og var tekið á móti hópnum í Veitingastofu Hringsins 10. sept. Þar sem afhentar voru kr. 170 þús. Í sjóðinn. Fréttamenn voru viðstaddir og boðið var upp á súpu. |

|
Golfmót Hringskvenna 2008 var haldið snemmsumars á golfvellinum á Vatnsleysuströnd undir stjórn Jónu Bjarnadóttur. Leiknar voru 18 holur í fallegu veðri, en svolitið blés þó. Verðlaun voru vegleg og konur ánægðar með samveruna þennan dag. |

|
| Golfmót Hringskvenna 2009 er fyrirhugað í júní. |
|