Félagsfréttir

Ágústgolfmót Hringskvenna

Seinna golfmót Hringskvenna sumarið 2010 var haldið á velli GKG í Garðabæ þann 18. ágúst í stórfínu veðri. Mættar voru 16 konur til að leika Texas scramble, sem er skemmtilegt leikafbrigði. Tvær og tvær mynduðu teymi og spiluðu 18 brautir með einum bolta upp á besta skor. Leiknum lauk með sigri mæðgnanna Svönu Jörgensdóttur og Önnu Gunnarsdóttur og fengu þær glæsileg verðlaun sem sigurvegari í júnígolfmóti Hringsins, Hrefna Smith, hafði gefið. Golfvöllur Kópavogs og Garðbæinga er skemmtilegur, en frekar erfiður í göngu og voru nokkrar konur því á golfbílum.

Golf Hringskvenna 2010

 

Júnígolfmót Hringskvenna 2010

Golfmótið var haldið á Korpúlfsstöðum miðvikudaginn 30. júní og hófst kl. 12. Þangað mættu 20 konur og voru allir rástímar bókaðir. Veðrið var ljómandi gott þó að nokkrar skúrir bæri yfir. Að leik loknum voru haldin formleg mótsslit með verðlaunaafhendingu fyrir lægsta skor, lengsta teighögg og högg næst holu á tveimur par 3 brautum. Þar að auki var dregið úr skorkortum viðstaddra. Sigurvegari með forgjöf var Hrefna Smith. Mótið var í umsjá systranna Önnu og Laufeyjar Gunnarsdætra.

Næsta golfmót Hringskvenna verður haldið hjá golfklúbbi Garðabæjar og Kópavogs miðvikudaginn 18. ágúst. Gert er ráð fyrir rástímum fyrir 30 konur.



 

Áheit á Barnaspítalasjóð Hringsins vegna Reykjvíkurmaraþons 2010.

Skipuleggjendur Reykjavíkurmaraþons gefa hlaupurum kost á að hlaupa í þágu góðs málefnis með því að tengja sig ákveðnum góðgerðafélögum. Vinir og vandamenn þeirra geta svo heitið peningaupphæð á þá og um leið á viðkomandi góðgerðafélög. Hringurinn er í hópi þessara félaga, sjá http://www.marathon.is/godgerdamal/hlaupa-til-gods, og hvetur vini sína og velunnara til að taka þátt og beina heitum sínum í Barnaspítalasjóð Hringsins.


Aðalfundur Hringsins verður haldinn í Nethyl 2, miðvikudaginn 5. maí  kl. 18:30.


Dagskrá aðalfundarins:
 

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Skýrsla gjaldkera. Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram
  3. Skýrslur formanna nefnda
  4. Ákvörðun árgjalds
  5. Lagabreytingar sem borist hafa stjórninni (Sjá hér að neðan)
  6. Stjórnarkjör: a) Tvær konur í aðalstjórn,  b) Tvær konur í varastjórn
  7. Kosning í nefndir
  8. Önnur mál. 

Sameiginlegt borðhald. Verð kr. 1.800.   Léttvín og gosdrykkir verða til sölu.

 

Tillögur að lagabreytingum:

1. Ragnheiður Sigurðardóttir leggur til að 2. grein félagslaga hljóði: “Markmið félagsins  er að vinna að líknar- og mannúðarmálum, sérstaklega í þágu veikra barna”

2. Jóna I. Guðmundsdóttir leggur til að bæta inn í 6. grein félagslaga: “Endurkjósa má konu í stjórn einu sinni, þ.e. hver kona getur setið í stjórn tvö kjörtímabil samfellt eða fjögur ár”



Utanlandsferð Hringskvenna 2010

Ferðanefndin kynnir næstu utanlandsferð Hringskvenna til Þýskalands dagana 23. – 26. september 2010.

Haldið verður til Wiesbaden sem stendur á bökkum Rínar, rétt vestur af Frankfurt, þar sem gist verður í 3 nætur á hóteli við göngugötuna í borginni. Wiesbaden er falleg borg með merka sögu og fallegar byggingar. Boðið verður upp á bæjarrölt með fararstjóra, en eins gefst tækifæri til að kanna bæinn á eigin vegum, versla dálítið eða fylgjast með mannlífinu frá fjölmörgum kaffi- og veitingahúsum sem miðbærinn hefur upp á að bjóða. Við förum einnig í dagsferð til Rüdesheim, sem er vinsæll ferðamannabær við ána Rín. Svæðið er einstaklega fallegt á þessum árstíma enda vínuppskerutíminn að ganga í garð.

Innfalið í ferðinni er :
• Flug til Frankfurt og flugvallarskattar
• Ferðir milli flugvallar og hótels
• Gisting í 2ja manna herbergi með baði á hótelinu Radisson BLU í 3 nætur
• Morgunverður
• Hátíðarkvöldverður 25. september.
• Skoðunarferð til Rüdesheim með rútu
• Íslensk fararstjórn

Verðið er kr. 112.150 á mann í tvíbýli - aukagjald fyrir einbýli kr. 18.880. Staðfestingargjald er 15.000 kr. á mann og fullnaðargreiðsla þarf að berast 8 vikum fyrir brottför.

Skráð verður í ferðina á aðalfundinum 5. maí og með tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  eða  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Vorferð Hringskvenna 2010

Farið verður á Snæfellsnes laugardaginn 5. júní. Mæting í Nethyl kl. 9:15.

Dagskrá:

09:30    Brottför frá Nethyl.       
12.00    Hádegisverður í Narfeyrarstofu í Stykkishólmi, matarmikil súpa, salat og brauð.

14.30    Ævintýrasigling um Breiðafjörð, kaffi og meðlæti um borð, fuglar, ferskt skeljasmakk, eyjarnar óteljandi, sagan og ógleymanleg ævintýri!

17.30    Hákarlasafnið í Bjarnarhöfn og hressing.

20.30    Áætluð heimkoma.

Leiðsögumaður í ferðinni verður hin góðkunna Anna Þrúður Þorkelsdóttir, löggiltur leiðsögumaður.


Verð aðeins kr. 10.900.  ALLT INNIFALIÐ (hádegisverður, sigling, kaffi, hákarlasafn, akstur, leiðsögn og ómæld gleði).

Skráning og greiðsla á félagsfundum í apríl og maí.

Nánari upplýsingar veitir ferðanefndin: Erla (897-5597), Rúna (899-6962) og Solveig (821-8034).

 

 

Barnaspítalasjóði hefur borist gjöf frá Alcan á Íslandi, 100 þúsund krónur. Starfsmenn Álversins hlupu Reykjavikurmaraþon og hópurinn Vísindamennirnir valdi Hringinn sem styrktaraðila. Styrkurinn var afhentur í Álverinu þann 13. nóvember. 

 

Barnaspítali Hringsins fær afhentar fartölvur

Hringurinn veitir styrk til kennara Barnaspítala Hringsins, tvær kennaratölvur og fimm fartölvur fyrir nemendur og foreldra langveikra barna. Með tölvunum komast börnin meðal annars á Skólavefinn.

 

Félagatal Hringsins er gefið út með andlitsmyndum af félagskonum.  Þetta hefur mælst vel fyrir og myndasöfnunin hefur gengið nokkuð vel, en betur þarf að gera ef takast á að ná því markmiði að sérhverju nafni fylgi mynd.

Við munum halda áfram að safna myndum í félagatalið. Best er að fá myndirnar á stafrænu formi frá góðum ljósmyndara á tölvupóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Góðar myndir á pappírsformi má einnig senda á skrifstofu félagsins í Nethyl 2, 110 Reykjavík.

Gætið þess að allar myndir séu merktar eða tengdar við nafn félagskonu.

Rétt er að benda á að ljósmyndastofa er í Nethyl á næstu hæð fyrir ofan félagsheimilið. Þar er hún Sirrý ljósmyndari sem hefur sent okkur margar góðar myndir. Tilvalið er að panta tíma hjá henni (557-7576) í tengslum við mætingu á félags- eða nefndafundi.


golfmot hringskvenna

Golfmót.  Annað golfmót Hringskvenna á árinu 2009 var haldið á Nesvellinum á Seltjarnarnesi 12. ágúst. Þátt í mótinu tóku yfir 20 konur og léku 18 holur. Veðrið var gott og konur kátar. Nesklúbburinn gerði vel við okkur og veitingarnar í klúbbhúsinu á eftir voru mjög góðar. Verðlaun voru veitt fyrir besta skor og hlutu þau Kristín Kristjánsdóttir og gestur mótsins, Dóra kennari á Barnaspítala Hringsins.

 

Stella María Jónsdóttir færir sjóðnum gjöf

Stella María Jónsdóttir, færði Barnaspítalasjóði Hringsins myndarlega fjárupphæð að gjöf.  Með því vill hún styrkja starf kvenfélagsins í þágu veikra barna.

Hringskonur færa henni alúðarþakkir

 

Glaðar golfkonur
Golfleikarar í hópi félagskvenna hittust á golfvellinum við Kálfatjörn á Vatnsleysuströnd fimmtudaginn 18. júní 2009. Leiknar voru 18 brautir, fyrri níu með öllum kylfunum, en seinni níu með þremur kylfum auk púttara. Veðrið var frábært til leiks og þetta litla ævintýri tókst vel. Að mótinu loknu var sameiginleg máltíð í golfskálanum og verðlaunaafhending fór fram. Til verðlauna unnu Gerður Birna Guðmundsdóttir (hvatningarverðlaun), Katla Ólafsdóttir (lengsta teighögg), Laufey Gunnarsdóttir (lægsta skor) og Sigrún Hjaltalín (nándarverðlaun).

 
Fjórar ungar stúlkur í Vík í Mýrdal tóku sig til og héldu tombólu í maílok til styrktar Barnaspítalasjóðnum. Þær heita: Birna Sólveig, Sigurjóna, Ólöf og Guðrún Lilja. Þeim er innilega þakkað fyrir hugulsemina og framlag sitt, kr. 7470.
 
« FyrstaFyrri12NæstaSíðasta »

Síða 1 af 2