| Jólabasar Hringsins |
|
Jón Hallmar Stefánsson kom færandi hendi í félagsheimili Hringsins á dögunum, en hann og amma hans, Halldóra Harðardóttir, færðu jólabasar Hringsins 250 pör af vettlingum sem Halldóra hefur prjónað á undanförnum mánuðum. Á myndinni má sjá Jón Hallmar afhenda Sjöfn Hjálmarsdóttur, varaformanni Hringsins, og Þóreyju Sveinbergsdóttur, formanni basarnefndar, þessa höfðinglegu gjöf. Færir Hringurinn Halldóru og Jóni Hallmari bestu þakkir fyrir framlag þeirra til veikra barna á Íslandi.
|
Minningarkort Hringsins fást á Veitingastofu Hringsins í Barnaspítalanum.
Einnig er hægt að panta minningarkort í síma 543-3022 og 543-3025 frá kl. 8-16 á virkum dögum.
Smellið hér til að skoða minningarkort og panta
Til styrktaraðila:
Kennitala Barnaspítalasjóðs Hringsins er 640169-4949 og reikningsnúmer er 0101-26-054506.