| Afhending hlaupastyrks 2011 |
|
Uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons var haldin miðvikudaginn 7. september í Ráðhúsinu. Þar mættu fulltrúar Hringsins meðal margra annarra. Samtals söfuðust yfir 43 milljónir króna sem renna til 131 góðgerðarfélags. Hvað einstök góðgerðafélög varðaði safnaðist mest fyrir Hringinn í nafni Barnaspítalasjóðs, 2,4 milljónir króna. Það voru rúmlega 300 hlauparar sem hlupu til styrktar Hringnum og Barnaspítalasjóði. Við Hringskonur erum afar stoltar og þakklátar aðstandendum Reykjavíkurmaraþons, hlaupurunum og þeim sem standa að baki áheitunum. Á myndinni (frá vinstri) eru Birna bankastjóri Íslandsbanka, Sjöfn varaformaður og Valgerður formaður Hringsins.
|
Minningarkort Hringsins fást á Veitingastofu Hringsins í Barnaspítalanum.
Einnig er hægt að panta minningarkort í síma 543-3022 og 543-3025 frá kl. 8-16 á virkum dögum.
Smellið hér til að skoða minningarkort og panta
Til styrktaraðila:
Kennitala Barnaspítalasjóðs Hringsins er 640169-4949 og reikningsnúmer er 0101-26-054506.