| Styrkveiting DHL og Nesklúbbsins í Barnaspítalasjóð |
|
Hið árlega golfmót sem nefnt hefur verið "Einvígið á Nesinu" var haldið á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 1. ágúst. Þetta er góðgerðamót, þannig að flutningafyrirtækið DHL afhendir peningaupphæð til að styrkja gott málefni. Í þetta sinn var það Barnaspítalasjóður sem varð aðnjótandi styrksins. Formaður og gjaldkeri Hringsins tóku því við ávísun að upphæð 1 milljón króna í mótslok. Fyrirtækinu eru hér með færðar bestu þakkir fyrir styrkinn sem mun verða notaður í þágu íslenskra barna. Mótið var afar skemmtilegt að vanda, vel skipulagt og áhorfendur margir. Það voru Íslandsmeistarar og golfmeistarar golfklúbbanna á Reykjavíkursvæðinu sem skemmtu áhorfendum með glæsilegum tilþrifum. Á myndinni hér fyrir neðan má sjá Nökkva Gunnarsson sigurvegara mótsins.
|
Minningarkort Hringsins fást á Veitingastofu Hringsins í Barnaspítalanum.
Einnig er hægt að panta minningarkort í síma 543-3022 og 543-3025 frá kl. 8-16 á virkum dögum.
Smellið hér til að skoða minningarkort og panta
Til styrktaraðila:
Kennitala Barnaspítalasjóðs Hringsins er 640169-4949 og reikningsnúmer er 0101-26-054506.